Biðjum fyrir öllum sem eru á ferðinni

Eins og venja er í Fossvogsprestakalli þá verður messufrí um verslunarmannahelgina næstkomandi. Næstu messur í prestakallinu verða að viku liðinni, sunnudaginn 11. ágúst kl. 11 í Grensáskirkju og kl. 20 í Bústaðakirkju. Nánari upplýsingar um það helgihald mun birtast hér á síðunni, er nær dregur.

Um verslunarmannahelgina biðjum við sérstaklega fyrir öllum sem eru á faraldsfæti. Við biðjum góðan Guð að gefa að allir ferðalangar skili sér heilir á áfangastað. Eins biðjum við fyrir skipuleggjendum og þátttakendum á útihátíðum og skemmtunum hvarvetna um landið um verslunarmannahelgina, megi öll sú dagskrá fara vel fram.