Kyrrðar- og fyrirbænastund í þriðjudagshádegi

Verum velkomin í Grensáskirkju á síðustu fyrirbæna- og kyrrðarstundina í bili. Hún hefst kl. 12 með hugljúfum gítartónum sem Hannes Guðrúnarson laðar fram. Prestur leiðir bænastund og síðan er hægt að setjast niður yfir léttri máltíð sem Kristín Hraundal, kirkjuvörður reiðir fram. 

Kyrrðar- og fyrirbænastundirnar hefjast að nýju í lok ágúst.