Kvöldmessa á sunnudaginn, ljúf stund.

Verið öll hjartanlega velkomin í kvöldmessu á sunnudag kl 20:00. Hólmfríður Ólafsdóttir djákni leiðir stundina ásamt Jónasi Þóri organista. Marteinn Snævarr Sigurðsson syngur og messuþjónar lesa ritningarlestra. í stundinni minnumst við Ólafíu Jóhannsdóttur en 21. júní eru 100 ár frá láti hennar, Ólafía var mikill mannúðarvinur og frumkvöðull í þjónustu við okkar minnstu systur og bræður.