30
2025 maí

Sumarnámskeið í Grensáskirkju

Grensáskirkja býður upp á sumarnámskeið vikurnar 10.-13. júní og 16.-20. júní 2025 fyrir börn á aldrinum 6-9 ára. 

Námskeiðin er frá kl. 9-15 (húsið opnar kl. 8:45 og lokar 15:30). Þátttökugjald er 15.000 kr. Þátttakendur koma með sitt eigið nesti, en kirkjan býður upp á ávexti. Hver dagur byggist upp af leik, fræðslu og fjöri. Við munum skemmta okkar í kirkjunni sem og í nærumhverfinu okkar. Mikilvægt er að koma með hlý og góð föt fyrir útiveru. 

Umsjón með starfinu hefur Sólveig Franklínsdóttir, æskulýðsfulltrúi, (gsm 8628883), solveig@kirkja.is.

Foreldrar skrá börn sín til þátttöku með því að fylla út skráningarupplýsingar, hér á heimasíðunni, eða með því að senda upplýsingarnar á netfangið solveig@kirkja.is. 

Skráningarformið er hér

Hvar?

Í Grensáskirkju, safnaðarheimilinu og kirkjunni. Gengið inn um aðaldyr kirkjunnar.

Hvenær?

Námskeið 1: Vikan 10.-13. júní 2025

Námskeið 2: Vikan 16.-20, júní 2025 (Frí 17. júní)

Hjartanlega velkomin(n)

Staðsetning / Sókn