Kvöldmessa í Bústaðakirkju á sjómannadaginn

Að kvöldi sjómannadagsins er boðið til helgistundar í Bústaðakirkju. 

Sr. María G. Ágústsdóttir, sóknarprestur, þjónar ásamt messuþjónum. 

Ásta Haraldsdóttir, kantor, og félagar úr Kammerkór Bústaðakirkju leiða sönginn. 

Verum öll velkomin til einfaldrar kvöldmessu í Bústaðakirkju.