Verið velkomin í guðsþjónustu

Sunnudaginn 21. janúar nk. kl. 13 fer fram guðsþjónusta í Bústaðakirkju. Félagar úr Kammerkór Bústaðakirkju syngja við undirleik Ástu Haraldsdóttur organista. Séra Danni prédikar og þjónar ásamt messuþjónum. 

Textar dagsins fjalla um hvernig guðdómleikinn er okkur mannfólkinu ráðgáta.

Verið hjartanlega velkomin til helgihalds í Bústaðakirkju.