Guðsþjónusta í Bústaðakirkju kl. 13
Sr. Sigríður Kristín Helgadóttir þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Ásta Haraldsdóttir organisti og félagar úr Kammerkór Bústaðakirkju leiða söfnuðinn í söng. Heitt er á könnunni og tilvalið að koma saman og spjalla í lok stundar.
Sjáumst í Bústaðakirkju.
(Mynd: Ásta Haraldsdóttir organisti)
Eyrir ekkjunnar
Guðspjall: Mrk 12.41-44
Jesús settist gegnt fjárhirslunni og horfði á fólkið leggja peninga í hana. Margir auðmenn lögðu þar mikið. Þá kom ekkja ein fátæk og lét þar tvo smápeninga, eins eyris virði. Og Jesús kallaði til sín lærisveina sína og sagði við þá: „Sannlega segi ég ykkur, þessi fátæka ekkja gaf meira en allir hinir er lögðu í fjárhirsluna. Allir gáfu þeir af allsnægtum sínum en hún gaf af skorti sínum allt sem hún átti, alla björg sína.“