Gleði og ótti: Messa í Grensáskirkju

Messa með altarisgöngu fer fram í Grensáskirkju sunnudaginn 11. ágúst nk. kl. 11. Kirkjukór Grensáskirkju syngur undir stjórn Ástu Haraldsdóttur. Séra Danni prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. 

Í guðspjalli dagsins segir Jesús þessi vegamiklu orð: 

Þér skuluð ekki heldur láta kalla yður leiðtoga því einn er leiðtogi yðar, Kristur. Sá mesti meðal yðar sé þjónn yðar. Hver sem upp hefur sjálfan sig mun auðmýktur verða en sá sem lítillækkar sjálfan sig mun upp hafinn verða.

Verið hjartanlega velkomin til helgihaldsins í Grensáskirkju.