Fögnum fjölbreytileikanum.

Sunnudaginn 9. ágúst komum við saman í Bústaðakirkju og fögnum fjölbreytileikanum í Regnbogamessu kl. 20.

Halla Þórlaug Óskarsdóttir, rithöfundur, myndlistarkona og fjölmiðlakona, flytur hugvekju kvöldsins. Gréta Hergils sópran söngkona syngur ljúfa tóna og Jónas Þórir leikur á flygilinn.

Sr. Laufey Brá Jónsdóttir þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum.

Verið hjartanlega velkomin til okkar í Bústaðakirkju.