Félagsstarf eldriborgara hefst að nýju 9. september kl 13:00
Félagsstarf eldriborgara hefst að nýju 9. september kl 13:00
Velkomin á haustönn vetrarstarfsins í kirkjunni okkar.
Dagskráin verður með svipuðu móti og verið hefur. Við fáum skemmtilegt fólk í heimsókn, söngur, gleði og gaman. Slökun í kapellunni Prestur eða Djákni verður með hugvekju og bæn, gátan verður á sínum stað og auðvitað kaffið góða frá
Andreu
Stundirnar eru byggðar upp þannig, kl 13:00 opnar húsið, 13:30 slökun í kapellu. 14:15 prestur með hugleiðingu og bæn 14:30 kaffi og erindi dagsins eða söngur.
Fólk sem sækir samveruna spilar og aðrir eru með handavinnu eða koma til þessa að vera með og spjalla.
Verið öll hjartanlega velkomin, sjáumst hress.
Umsjónarmaður félagsstarfsins er Hólmfríður Ólafsdóttir djákni.
holmfridur@kirkja.is
Umsjónaraðili/-aðilar