Verum velkomin í hátíðlega jólamessu í Bústaðakirkju á jóladag kl. 13. 

Einsöngvari er Bjarni Atlason, Jónas Þórir leikur á orgelið og prestur er sr. María G. Ágústsdóttir. Kammerkór Bústaðakirkju syngur. 

Flutt verður hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar: 

Barn er oss fætt, sonur er oss gefinn. 

Á hans herðum skal höfðingjadómurinn hvíla.

Hann skal heita hinn undrunarlegi, ráðgjafi, hinn máttugi Guð. 

Faðir eilífðarinnar, friðarhöfðingi.