Velkomin í barnamessu

Verið velkomin í barnamessu í Bústaðakirkju næsta sunnudag, 21. janúar, kl. 11. Danni og Kata leiða stundina. Antonía Hevesi verður á flyglinum. 

Við þurfum öll góðan grunn til þess að byggja lífið okkar á. Þá er gott að eiga að bænina og orð Guðs. Jesús sagði sögu af tveimur mönnum sem að byggðu sér hús. Annar byggði á bjargi en hinn byggði á sandi. Svo byrjaði að rigna. Hvað ætli hafi gerst næst?

Verið hjartanlega velkomin í barnamesssu í Bústaðakirkju.