28
2026 September

Prjónað faðmlag

Vinavoðir eru hópur sem hittist á fimmtudögum í kirkjunni og prjóna til góðs. Fimmtudaginn sl. afhenti Hólmfríður djákni báðum kirkjunum afrakstur síðasta vetrar. Séra Sigríður Kristín Helgadóttir tók á móti vinavoðunum og munu prestar og djákni í prestakallinu afhenda þær til þeirra sem misst hafa ástvin eða eru í erfiðleikum.

Þetta eru treflar og sjöl sem beðið hefur verið fyrir og ætlað sem faðmlag frá söfnuðunum báðum, Grensáskirkju og Bústaðakirkju. Með hverri vinavoð fylgir bæn og vatnslituð mynd.

Fallegt verkefni sem vert er að taka þátt í.

Vinavoðirnar eru á fimmtudögum í Grensáskirkju frá 12-14.

Verið hjartanlega velkomin.