01
2026 April

Margir lögðu sitt að mörkum

Blár mars fór fram í Grensáskirkju í liðnum mánuði. Það var í fyrsta skiptið sem efnt er til dagskrár í Bláum mars í Grensáskirkju. Ungir sem aldnir komu að dagskránni. 

Blár mars í Grensáskirkju hófst á æskulýðsmessu, sunnudaginn 1. mars kl. 11. Þar leiddi Margrét Pálmadóttir stúlknakór í söng við undirleik Ástu Haraldsdóttur organista. Æskulýðsfélagið Poný undir handleiðslu Sólveigar Franklínsdóttur æskulýðsfulltrúa efndi til vöfflusölu í Grensáskirkju á æskulýðsdaginn og rann ágóðinn til styrktar Ljósinu. Stúlknakór Reykjavíkur hélt síðan tónleika í Grensáskirkju að lokinni æskulýðsmessu. Varningur Krabbameinsfélagsins var einnig til sölu, bindi, sokkar og fleira, og safnað frjálsum fjárframlögum til stuðnings Ljósinu. 

Sunnudaginn 8. mars voru Karlar og bænir á dagskrá í helgihaldi dagsins og áfram tekin samskot fyrir Ljósið. Varningur Krabbameinsfélagsins var til sölu. 

Miðvikudaginn 11. mars kl. 20 fór fram fram dagskrá í Grensáskirkju. Karlakór Kópavogs söng undir stjórn Sigurðar Helga. Matti Ósvald flutti erindi um karla og krabbamein þar sem hann fjallaði m.a. um hvað er ólíkt milli kynjanna varðandi úrvinnslu á slíku ávalli, þ.e. að greinast með krabbamein. Hann ræddi einnig um þann vöxt sem getur falist í erfiðleikunum. Róbert Heimir Hnífsdal Halldórsson fjallaði um sína eigin reynslu af því að greinast með krabbamein. Tekin voru samskot fyrir Ljósinu og vörur Krabbameinsfélagsins til sölu. 

Sunnudaginn 15. mars kl. 11 tók Skólahljómsveit Austurbæjar þátt í fjölskyldumessu í Grensáskirkju. Samskot voru tekin fyrir Ljósinu og vörur Krabbameinsfélagsins voru til sölu. 

Þriðjudagskvöldið 17. mars kl. 20 fór fram skemmtikvöld æskulýðsfélagsins. Fermingarbörn, foreldrar og fjölskyldur voru boðin sérstaklega velkomin. Boðið var upp á vöfflur til styrktar Ljósinu. 

Föstudaginn 20. mars kl. 10 fór fram karlakaffi í Grensáskirkju. Þar var körlum boðið í trúnaðarsamtal um blöðruhálskyrtilskrabbamein. Samtalið leiddi Þráinn Þorvaldsson.

Sunnudaignn 22. mars kl. 11 söng Karlakór KFUM við messu dagsins í Grensáskirkju. Samskot voru tekin fyrir Ljósinu og vörur Krabbameinsfélagsins til sölu. 

Við þökkum öllum sem tóku þátt í Bláum mars í Grensáskirkju. 

Dagskrána framundan í kirkjunni má finna hér á heimasíðunni. 

Verið hjartanlega velkomin í Grensáskirkju á helgum páskum.