
Leikir, fræðsla og fjör
Grensáskirkja býður upp á sumarnámskeið fyrir börn vikurnar 10.-13. júní og 16.-20. júní nk. Námskeiðin eru ætluð börnum á aldrinum 6-9 ára.
Námskeiðin munu standa frá klukkan 9 til 15 (húsið opnar kl. 8:45 og lokar 15:30). Þátttökugjald er kr. 15.000.- Þátttakendur koma með sitt eigið nesti, en kirkjan býður upp á ávexti. Hver dagur byggist upp af leik, fræðslu og fjöri. Dagskráin mun fara fram í kirkjunni, safnaðarheimilinu, sem og í nærumhverfi kirkjunnar. Mikilvægt er að koma með hlý og góð föt fyrir útiveru.
Umsjón með starfinu hefur Sólveig Franklínsdóttir, æskulýðsfulltrúi, (gsm 8628883), solveig@kirkja.is.
Foreldrar skrá börn sín til þátttöku með því að fylla út skráningarupplýsingar sem finna má hér á heimasíðunni, eða með því að senda upplýsingarnar á netfangið solveig@kirkja.is.
Verið hjartanlega velkomin á sumarnámskeið í Grensáskirkju.