19
2026 júní

Dásamleg börn og dásamlegt veður

Sumarnámskeið fer fram í Grensáskirkju þessar vikurnar. Góð þátttaka er á námskeiðunum og dagskráin fjölbreytt. Sólveig Franklínsdóttir æskulýðsfulltrúi hefur veg og vanda að dagskránni, ásamt leiðtogum sínum. 

Veðrið lék við börnin í liðinni viku og fór hópurinn meðal annars í vettvangsferð í Elliðaárdalinn, eins og sést hér á myndunum. 

Upplýsingar um barnastarfið í Bústaðakirkju og Grensáskirkju má finna á heimasíðunni, en einnig veita prestar og annað starfsfólk upplýsingar um starfið og þjónustuna. 

Verið hjartanlega velkomin til þátttöku í starfi kirkjunnar. 

...já, það var farið út í hylinn í Elliðaánum

Já, það var farið út í hylinn í Elliðaánum, jú það var nú svolítið kalt. 

Frekari upplýsingar hér fyrir neðan

Frekari upplýsingar hér fyrir neðan.