Félagsauður mikill og samvinna góð
Sumardagurinn fyrsti var haldinn hátíðlegur í Fossvoginum fimmtudaginn 23. apríl sl.
Dagskráin hófst í Bústaðakirkju með opnun listasýningar leikskólabarna í anddyri kirkjunnar kl. 11:00.
Klukkan 11:30 hóf Skólahljómsveit Austurbæjar dagskrána í Bústaðakirkju með dásamlegum lúðraþyt og tónlist. Þá voru sungin nokkur sunnudagaskólalög. Stundina í kirkjunni leiddu séra Sigríður Kristín Helgadóttir, séra Þorvaldur Víðisson og Sólveig Reynisdóttir leiðtogi. Ásdís Magdalena Þorvaldsdóttir lék á flygil.
Hrólfur Svavarsson formaður nemendafélags Réttarholtsskóla flutti hátíðarræðu.
Félagar úr línudanshópi Hæðagarðs ætluðu að sýna listir sínar, en forföll urðu úr hópnum. Þau báðu fyrir sumarkveðjur.
Frá Bústaðakirkju var gengið í skrúðgöngu niður í Víkina. Skátafélagið Garðbúar leiddu gönguna ásamt Skólahljómsveit Austurbæjar og lögreglumönnum á bifhjólum. Í Víkinni buðu Víkingar upp á pylsur, andlitsmálun fyrir börnin og hoppukastala, og kaffi og veitingar fyrir eldri kynslóðina.
Dagskráin og framkvæmdin öll er birtingarmynd hins mikla félagsauðs sem finna má í Fossvoginum, þar sem skólar, leikskólar, félagasamtök, skátar, kirkjan, Knattspyrnufélagið Víkingur, Skólahljómsveit Austurbæjar, borgin, Bústaðir, Hæðagarður o.fl. leggja sitt að mörkum í skipulagningu og framkvæmd.
Við þökkum vel heppnaðan dag og óskum ykkur gleðilegs sumars.
Nokkrar myndir frá deginum má sjá hér fyrir neðan.
Nokkrar myndir, Hrólfur Svavarsson
Hrólfur Svavarsson
Myndlistarsýning leikskólabarna
Myndlistarsýning leikskólabarna
Myndlistarsýning leikskólabarna
Myndlistarsýning leikskólabarna
Myndlistarsýning leikskólabarna
Myndlistarsýning leikskólabarna
Myndlistarsýning leikskólabarna
Myndlistarsýning leikskólabarna
Myndlistarsýning leikskólabarna
Myndlistarsýning leikskólabarna
Myndlistarsýning leikskólabarna
Myndlistarsýning leikskólabarna
Myndlistarsýning leikskólabarna
Myndlistarsýning leikskólabarna
Myndlistarsýning leikskólabarna
Myndlistarsýning leikskólabarna
Myndlistarsýning leikskólabarna
Myndlistarsýning leikskólabarna
Myndlistarsýning leikskólabarna
Myndlistarsýning leikskólabarna
Myndlistarsýning leikskólabarna
Myndlistarsýning leikskólabarna
Ásdís Magdalena lék á flygil
Ásdís Magdalena lék á flygil
Dagskráin
Hér má sjá dagskrána