06
2024 maí

Félagsauðurinn mikill í Fossvoginum

Sumardagurinn fyrsti var haldinn hátíðlegur í Fossvoginum í dag, fimmtudaginn 25. apríl. 

Dagskráin hófst við Grímsbæ þar sem Víkingar stóðu vaktina við grillið og buðu pylsur í stórum stíl. Krambúðin gaf pylsurnar. 

Frá Grímsbæ var svo gengið fylktu liði undir taktföstum hljóm Skólahljómsveitar Austurbæjar. 

Skátafélagið Garðbúar leiddi gönguna.

Göngunni lauk í Bústaðakirkju þar sem skólahljómsveitin tók nokkur lög fyrir utan kirkjuna og síðan tók við fjölbreytt dagskrá innan dyra. Listaverk leikskólabarna hverfisins voru til sýnis í anddyri kirkjunnar. 

Dagskráin inni í kirkjunni hófst á samsöng þar sem sumarlög voru sungin við undirleik Jónasar Þóris organista kirkjunnar. Séra María G. Ágústsdóttir sóknarprestur leiddi stundina í kirkjunni. 

Kór Breiðagerðisskóla söng þrjú falleg og skemmtileg lög.

Guðrún Margrét formaður nemendafélags Réttarholtsskóla flutti hátíðarræðu. 

Heiðrún Lóa sigurvegari söngkeppni Álftamýrar tók lagið.

Félagar úr línudanshópi Hæðagarðs sýndu listir sínar. 

Að lokum var samsöngur. 

Frá Bústaðakirkju lá leiðin niður í Vík, þar sem boðið var upp á andlitsmálun fyrir börnin og hoppukastala, og kaffi og kleinur fyrir eldri kynslóðina. 

Við tók bikarleikur karlaliða Víkings og Víðis Garði sem fram fór á heimavelli hamingjunnar og lauk leiknum með sigri okkar manna 4-1. 

Dagskráin og framkvæmdin öll er birtingarmynd hins mikla félagsauðs sem finna má í Fossvoginum, þar sem skólar, leikskólar, félagasamtök, skátar, kirkjan, Knattspyrnufélagið Víkingur, Skólahljómsveit Austurbæjar, borgin, Bústaðir, Hæðagarður o.fl. leggja sitt að mörkum í skipulagningu og framkvæmd. 

Við þökkum vel heppnaðan dag og óskum ykkur gleðilegs sumars. 

Skátar og Skólahljómsveit fyrir utan Bústaðakirkju

Skátafélagið Garðbúar leiddu gönguna.

Göngunni lauk í Bústaðakirkju þar sem skólahljómsveitin tók nokkur lög fyrir utan kirkjuna og síðan tók við fjölbreytt dagskrá innan dyra. Listaverk leikskólabarna hverfisins eru til sýnis í anddyri kirkjunnar.

Fjölmenni inni í kirkjunni og mikið rennerí af fólki

Fjölmenni var í kirkjunni þar sem skemmtileg og fjölbreytt dagskrá fór fram.

Sumarlögin voru sungin

Í upphafi dagskrárinnar í Bústaðakirkju voru sumarlögin sungin við undirleik Jónasar Þóris organista, þar sem séra María G. Ágústsdóttir sóknarprestur leiddi stundina. 

Kór Breiðagerðisskóla

Kór Breiðagerðisskóla söng þrjú og skemmtileg lög undir stjórn Dísu og Halls, kórstjóra sinna, við undirleik Jónasar Þóris organista Bústaðakirkju. 

Heiðrún Lóa söng

Heiðrún Lóa sigurvegari söngkeppni Álftamýrar tók lagið við gríðarlega góðar undirtektir. 

Guðrún Margrét flutti hátíðarræðu

Guðrún Margrét formaður nemendafélags Réttarholtsskóla flutti frábæra hátíðarræðu. 

Danshópur úr Hæðargarði sýndi línudans

Danshópur úr Hæðagarði sýndi sína takta.

Listasýning leikskólabarna fór fram í anddyri Bústaðakirkju

Leikskólabörn sýndu verk sín í anddyri Bústaðakirkju. Hægt verður að sjá sýninguna næstu daga. 

Sigur á heimavelli hamingjunnar

Dagskrá Sumardagsins fyrsta lauk síðan á bikarleik karlaliðs Víkings og Víðis Garði, sem fram fór á heimavelli hamingjunnar. Víkingur sigraði leikinn 4-1.

Dagskráin og framkvæmdin öll er birtingarmynd hins mikla félagsauðs sem finna má í Fossvoginum, þar sem skólar, leikskólar, félagasamtök, skátar, kirkjan, Knattspyrnufélagið Víkingur, Skólahljómsveit Austurbæjar, borgin, Bústaðir, Hæðagarður o.fl. leggja sitt að mörkum í skipulagningu og framkvæmd. 

Við þökkum vel heppnaðan dag og óskum ykkur gleðilegs sumars.