24
2024 April

Dr. María Guðrúnar Ágústsdóttir prestur í Fossvogsprestakalli fjallar um bókina Söngvar Satans eftir Salman Rushdie í safnaðarheimili Bústaðakirkju, miðvikudaginn 28. september kl. 14:15 í félagsstarfi eldri borgara.

Félagsstarf eldriborgara í Fossvogsprestakalli fer fram í Bústaðakirkja alla miðvikudaga kl. 13:00-16:00 með sinni fjölbreyttu dagskrá. Margir gestir koma í heimsókn og miðla ýmsum fróðleik og skemmtun, gleði og söng. Gjarnan fara fram bókakynningar og mun dr. María að þessu sinni fjalla um hina umdeildu bók Salmans Rushdies.

Í eldri borgarastarfinu er tekið í spil, sumir sinna handavinnu og kaffið góða er ávallt á sínum stað. Verið hjartanlega velkomin í Bústaðakirkju.

Staðsetning / Sókn