Hátt í 200 manns í Bleikum október í Bústaðakirkju
Sóli Hólm sló í gegn í Bleikum október í Bústaðakirkju. Tónleikagestir veltust um að hlátri. Sóli er stórkostleg eftirherma og grínisti og brá sér í líki Gylfa Ægissonar, Páls Óskars Hjálmtýssonar, Pálma Gunnarssonar og fleiri þjóðþekktra einstaklinga. Jónas Þórir lék á flygil.
Hátt í 200 tónleikagestir mættu á hádegistónleikana með Sóla Hólm og Jónasi Þóri miðvikudaginn 14. október kl. 12:05.
Séra Laufey Brá Jónsdóttir kynnti þá félaga til leiks og leiddi bænastund í lok tónleikanna. Boðið var upp á súpu í safnaðarheimilinu að tónleikum loknum.
Aðgangur var ókeypis, en tekið var við frjálsum framlögum til Ljóssins. Eins voru bleiku slaufur Krabbameinsfélagsins til sölu.
Hádegistónleikar verða alla miðvikudagana í október. Eins er dagskrá sunnudaganna í Bústaðakirkju í október lituð bleikum tónum. Sjá nánar upplýsingarnar hér til hliðar.
Verið hjartanlega velkomin til þátttöku í Bleikum október í Bústaðakirkju.
Dagskráin framundan
Hádegistónleikar verða alla miðvikudagana í október. Eins er dagskrá sunnudaganna í Bústaðakirkju í október lituð bleikum tónum. Sjá nánar upplýsingarnar hér til hliðar. Verið hjartanlega velkomin til þátttöku í Bleikum október í Bústaðakirkju.