30
2026 April

Upplýsingabæklingur mun skila sér í póstkassann

Skráning til fermingarfræðslu vegna 2026-2027 er hafin í Fossvogsprestakalli. Skráning fer fram hér á heimasíðunni, þar sem einnig er hægt að finna nánari upplýsingar um dagskrá og skipulag fræðslustarfsins. Sjá hér: Fermingarfræðsla | Fossvogsprestakall

Upplýsingabæklingur um fermingarstörfin verður borinn út til foreldra og verðandi fermingarbarna á næstu dögum. 

Verið hjartanlega velkomin til fermingarstarfa í Bústaðakirkju og Grensáskirkju.