26
2026 August

Viltu vera með?

Í Bústaðakirkju starfa nokkrir hópar messuþjóna. Messuþjónarnir annast um ýmiskonar þjónustu í helgihaldi kirkjunnar, svo sem lestur ritningarlestra, móttöku á kirkjugestum, umsjón með kirkjukaffi, uppröðun á sálmanúmerum og fleiru. Hóparnir eru fimm taldsins og skipta þeir með sér sunnudögum og helgidögum ársins. Það má því reikna með að hver hópur annist um messuþjónustu fimmta hvern sunnudag. 

Þriðjudaginn 1. september nk. kl. 16:30 verður haldinn kynningarfundur varðandi störf messuþjóna í Bústaðakirkju og nýir þátttakendur sérstaklega boðnir velkomnir. 

Fundurinn verður haldinn í safnaðarheimilinu og einnig í kirkjunni sjálfri. 

Áhugasamir eru hjartanlega velkomnir.