14
2026 July

Næst verður messað sunnudaginn 9. ágúst

Messufrí verður að venju í Grensáskirkju síðustu tvo sunnudaga júlímánaðar og sunnudaginn í Verslunarmannahelgi. Næsta messa í Grensáskirkju verður því sunnudaginn 9. ágúst nk., en þá mun séra Laufey Brá Jónsdóttir þjóna fyrir altari, ásamt messuþjónum. 

Í Fossvogsprestakalli fer helgihaldið fram með kvöldmessum í Bústaðakirkju næstu tvo sunnudaga kl. 20. Messufrí er í báðum kirkjum um Verslunarmannahelgina. 

Góður Guð veiti ykkur sína blessun og náð og gefi gæfuríkt og gjöfult sumar.