01
2026 April

Krílasálmar í Grensáskirkju

Krílasálmanámskeið hefst í Grensáskirkju mánudaginn 13. apríl nk. kl. 10 og verður einu sinni í viku, alla mánudaga, í sex vikur til og með 18. maí. Námskeiðið er ætlað ungabörnum á aldrinum þriggja mánaða til eins árs. Krílasálmastundirnar eru dásamlegar samverustundir barna og foreldra þeirra þar sem mikið er sungið og leikið. Á námskeiðinu er unnið með skynjun og upplifun, tónlistararfinn og menninguna. Sungnir eru sálmar og lög kirkjunnar, þekkt barnalög og kvæði, leikið, dansað og hlustað í notalegu umhverfi kirkjunnar. Fjöldi þátttakenda takmarkast við tólf börn. 

Ragnheiður Bjarnadóttir tónlistarkennari og séra Laufey Brá Jónsdóttir annast um dagskrána. 

Tekið er á móti skráningum á netfangið laufey@kirkja.is

Verið hjartanlega velkomin á krílasálmanámskeið í Grensáskirkju.

Myndirnar hér voru teknar á krílasálmanámskeiðið í Bústaðakirkja 2023.