27
2026 September

Gengið inn í söguna

Krakkasálmarnir í Grensáskirkju hófust í dag, sunnudaginn 27. september kl. 11:00. 

Um er að ræða barnastarf á sunnudögum í safnaðarheimili Grensáskirkju á sama tíma og messan fer fram. 

Starfið hefst í messunni og eftir signingu og bæn, ná leiðtogarnir í kertaljós af altarinu og ganga með börnin yfir í safnaðarheimilið þar sem dagskráin fer fram. Þar fá börnin meðal annars tækifæri til að ganga inn í biblíusöguna, þ.e. alltaf er saga dagsins leikin og allir fá að taka þátt. Söngur og bænir er einnig undirstaðan í samverunni. Boðið er upp á ávexti, brauð og álegg að stundinni lokinni. 

Krakkasálmarnir eru nýjung í starfi Fossvogsprestakalls þar sem séra Laufey Brá Jónsdóttir og leiðtogarnir úr æskulýðsstarfinu hafa skapað glænýja umgjörð um boðskapinn mikilvæga, sem ætlaður er börnum á öllum aldri. 

Starfið lofar góðu og önnuðust Iðunn, Gréta og Gabríel starfið í dag. 

Hér á myndinni má sjá séra Laufeyju ásamt Iðunni og Grétu, en þær leiddu börnin, ásamt Gabríel, inn í Krakkasálmana við fiðluleik og sönginn Við göngum í ljósi Guðs. 

Þessar vikurnar stendur yfir námskeið í Krílasálmum í Grensáskirkju fyrir yngstu börnin, 3ja til 12 mánaða. Krakkasálmarnir eru síðan fyrir börn á öllum aldri. 

Fjölmennum næsta sunnudag í messu og krakkasálma í Grensáskirkju.