Jólahátíðin í Bústaðakirkju og Grensáskirkju
Mikið verður um dýrðir um jólin í Bústaðakirkju og Grensáskirkju, í Fossvogsprestakalli. Allt hefðbundið helgihald verður á sínum stað um hátíðarnar og má sjá dagskrána hér til hliðar.
Aftansöngur á aðfangadagskvöld verður í báðum kirkjum kl. 18, bæði í Bústaðakirkju og Grensáskirkju. Fyrr um daginn eða klukkan 16 á aðfangadag verður barna- og fjölskyldustund í Bústaðakirkju. Miðnæturguðsþjónusta verður síðan í Grensáskirkju á jólanótt og hefst kl. 23:30.
Hátíðarguðsþjónusta verður á jóladag klukkan 13 í Bústaðakirkju og klukkan 14 í Grensáskirkju.
Kirkja heyrnarlausra mun hafa sitt jólahelgihald á öðrum degi jóla í Grensáskirkju, eins og undanfarin ár.
Jólaball fer fram í Bústaðakirkju sunnudaginn 29. desember kl. 15, þar sem góðir rauðklæddir gestir munu heimsækja okkur. Sungið verður og dansað í kringum jólatréð.
Um áramótin verður aftansöngur í báðum kirkjum, Bústaðakirkju og Grensáskirkju, á gamlársdag kl. 18.
Á nýársdag verður hátíðarguðsþjónusta klukkan 13 í Bústaðakirkju og klukkan 14 í Grensáskirkju.
Sunnudaginn 5. janúar munu séra María G. Ágústsdóttir fráfarandi sóknarprestur og séra Daníel Ágúst Gautason æskulýðsprestur kveðja söfnuði Fossvogsprestakalls við hátíðlega guðsþjónustu í Grensáskirkju kl. 11. Séra María hefur verið ráðin sóknarprestur í Reykholti og séra Daníel Ágúst hefur verið ráðinn í afleysingu við Lindakirkju í Kópavogi.
Nánari upplýsingar um helgihaldið um hátíðarnar má finna hér á heimasíðunni og á samfélagsmiðlum.
Verið hjartanlega velkomin í Bústaðakirkju og Grensáskirkju um jólin.