Jólin í Fossvogsprestakalli
Mikið verður um dýrðir um jólin í Bústaðakirkju og Grensáskirkju, í Fossvogsprestakalli. Allt hefðbundið helgihald verður á sínum stað um hátíðarnar og má sjá dagskrána hér í viðhengi.
Aftansöngur á aðfangadagskvöld verður í báðum kirkjum klukkan 18, bæði í Bústaðakirkju og Grensáskirkju. Fyrr um daginn eða klukkan 16 á aðfangadag verður barna- og fjölskyldustund í Bústaðakirkju. Miðnæturguðsþjónusta verður síðan í Grensáskirkju á jólanótt og hefst kl. 23:30.
Hátíðarguðsþjónusta verður á jóladag klukkan 13 í Bústaðakirkju og klukkan 14 í Grensáskirkju.
Kirkja heyrnarlausra mun hafa sitt jólahelgihald á öðrum degi jóla í Grensáskirkju, eins og undanfarin ár.
Jólaball fer fram í Bústaðakirkju 27. desember kl. 15, þar sem góðir rauðklæddir gestir munu heimsækja okkur. Sungið verður og dansað í kringum jólatréð.
Um áramótin verður aftansöngur í báðum kirkjum, Bústaðakirkju og Grensáskirkju, á gamlársdag klukkan 18.
Á nýársdag verður hátíðarguðsþjónusta klukkan 13 í Bústaðakirkju og klukkan 14 í Grensáskirkju.
Nánari upplýsingar um helgihaldið um hátíðarnar má finna hér á heimasíðunni.
Verið hjartanlega velkomin í Bústaðakirkju og Grensáskirkju um hátíðarnar.