10
2024 October

Færir foreldrar á foreldramorgni

Hrafnhildur Helgadóttir hjúkrunarfræðingur, kennari, faggildur leiðbeinandi í skyndihjálp og með réttindi sem Gottman Bring baby home educator annaðist um fræðslu fyrir foreldra ungra barna í Bústaðakirkju fimmtudaginn 2. maí sl. 

Þar var um að ræða mjög svo hagnýta foreldrafræðslu þar sem viðfangsefnin voru m.a..: 

  • Ég, þú við, undirbúningur fyrir foreldrahlutverkið.
  • Barnið heim, hvað svo? Áskoranir í nýju hlutverki.
  • Þroski barna og tengslamyndun.
  • Hvernig leysum við ágreining?
  • Hvernig höldum við nándinni? 

Verkefnið er samstarfsverkefni Hallgrímskirkju, Háteigskirkju og Bústaðakirkju. Umsjón með foreldramorgnunum hefur Ragnheiður Bjarnadóttir tónlistarkennari. 

Við þökkum Hrafnhildi mjög svo áhugaverða fræðslu og samveru á þessum morgni í Bústaðakirkju. Eins þökkum við öllum þeim sem komu.

Verið hjartanlega velkomin á foreldramorgna í Bústaðakirkju.