07
2026 February
Image
Hæfileikakross

Hæfileikamessa unga fólksins

Guðsþjónusta fyrsta sunnudags í níuvikna föstu í Grensáskirkju var helguð leiðtogunum í barna- og æskulýðsstarfi Fossvogsprestakalls er leiddu þjónustuna. Þá fór fram fjölskyldumessa með gjörningi, þar sem umfjöllunarefni dagsins var hæfileikar. Ásta Haraldsdóttir kantor leiddi tónlistina og stjórnaði Kór Grensáskirkju. Séra Laufey Brá Jónsdóttir og Sólveig Franklínsdóttir æskulýðsfulltrúi voru unga fólkinu til aðstoðar. Þær sögðu frá guðspjalli dagsins og fengu nokkur fermingarbörn til þess að leika með í frásögunni. Þetta var létt og skemmtileg messa þar sem unga fólkið fékk að láta ljós sitt skína.

Image
Laufey og leiðtogar

Séra Laufey Brá og leiðtogar

Samtalshugvekja um hæfielika og Guðsgjafir

Samtalshugvekja um hæfileika og Guðsgjafir

Þau Gréta Petrína Zimsen og Gabríel Bjarmi Jónsson fluttu líflega samtalshugvekju með leik og þátttöku fólks er fjallaði um hæfileika okkar og  hvernig við förum með gjafirnar sem Guð hefur gefið okkur.

Hæfileikakross

Í beinu framhaldi af hugvekjunni tók fólk þátt í skemmtilegum gjörningi. Öllum var boðið að skrifa einhvern hæfileika sinn á minnismiða. Miðarnir voru síðan festir upp á einn kirkjuvegginn og mynduðu þar saman kross.

Ritningarlestur og trúarjátning

Ritningarlestra lásu þær Guðlaug Bóel Ísleifsdóttir og Iðunn Helga Zimsen er leiddi einnig trúarjátninguna og fór með þakkir í messulok. 

Regnbogabæn

Almenna kirkjubænin var svokölluð regnbogabæn. Iðunn Gréta Zimsen, Guðlaug Bóel Ísleifsdóttir, Gabríel Bjarmi Jónasson, Gréta Petrína Zimsen og Ísak Dóri Hjaltason fluttu bænarefnin í sjö liðum. 

F.V. Iðunn, Guðlaug, Gabríel, Gréta og Ísak.

Kveikt á bænakertum

Þá kveikti Lilja Hönnudóttir á einu kerti í senn fyrir hvert bænarefni, sem voru í mismunandi litum regnbogans.

Æskan okkar

Barna- og æskulýðsstarfið er í blóma í Fossvogsprestakalli. Þar er m.a. boðið upp á Æskulýðsfélagið Pony í Grensáskirkju fyrir unglinga í 8.-10. bekk. Þangað sækja fjölmörg og hæfileikarík ungmenni sem njóta góðs af handleiðslu okkar hæfileikaríku leiðtoga.

Til lukku !

Þess má geta að æskulýðsfélagið Pony vann til fyrstu verðlauna fyrir þátttöku sína í hæfileikakeppni ungmenna á unglingamóti ÆSKH í Vatnaskógi síðast liðið haust. Þar kepptu systkinin Auður Laufey Reynisdóttir og Gísli Svanur Reynisson fyrir hönd Pony og hlutu glæsilegan farandbikar að launum fyrir framúrskarandi Jive dansatriði. - Já, unga fólkið okkar er svo sannarlega hæfileikaríkt.

Messukaffi og þakkir

Eftir guðþjónustuna var messukaffi að hætti leiðtoganna undir góðri umsjón Helgu Bjargar Gunnarsdóttur. Boðið var upp á brauð með smjöri og ýmsu áleggi, kleinuhringi, kaffi, safa og epli. 

Fólk gaf sér góðan tíma til að gleðjast saman, spjalla og gæða sér á góðum veitingum.

Við þökkum okkar yndislegu leiðtogum og ungleiðtogum fyrir þeirra þjónustu og öllum þeim er tóku þátt í messunni. Megi lifandi og kærleiksríkur Guð vernda þau öll í lífi þeirra og starfi.

Sólveig Franklínsdóttir

Æskulýðsfulltrúi Fossvogsprestakalls