18
2026
August
Sameiginleg messa í Hallgrímskirkju í Saurbæ
Sameiginleg messa í Hallgrímskirkju í Saurbæ
Sunnudaginn 16. ágúst sl. hélt góður hópur fólks í ferð, að lokinni messu í Grensáskirkju. Áfangastaðurinn var Hallgrímskirkja í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd.
Tilefni ferðarinnar var að fylgja formlega úr hlaði orgelgjöf sem söfnuðurinn í Grensáskirkju gaf Hallgrímskirkju í Saurbæ fyrr á þessu ári. Orgelið var flutt úr Grensáskirkju og sett upp í Hallgrímskirkju á liðnum vetri. Orgelið var fyrst tekið í notkun á nýja staðnum um síðustu páskahátíð. Sameiginleg messa safnaðanna, Grensássafnaðar og safnaðarins í Hallgrímskirkju fór sem sagt fram af þessu tilefni sunnudaginn 16. ágúst kl. 14.
Um er að ræða orgel sem Grensássókn átti og notaði til margra ára í helgihaldi sínu. Þegar nýtt orgel í Grensáskirkju var tekið í notkun var umrætt orgel varðveitt í safnaðarheimili Grensáskirkju og hefur staðið þar síðan. Um er að ræða gott hljóðfæri sem orgelnemar hafa notað til æfinga undanfarin ár.
Það er fagnaðarefni að orgelið hafi nú fengið nýtt hlutverk og verið komið upp á fallegum stað í Hallgrímskirkju í Saurbæ.
Erik Pálsson formaður sóknarnefndar Grensáskirkju flutti ávarp við helgihaldið og afhenti formanni sóknarnefndar Hallgrímskirkju í Saurbæ innrammað skjal með eftirfarandi texta: Steinmayer orgel þetta er gjöf Grensássafnaðar til safnaðarins í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Orgelið er upprunalega frá þýska framleiðandanum Steinmayer og kom til landsins 1970. Danski orgelsmiðurinn Bruno Christensen & Sönner bættu síðar við orgelið einni bassarödd. Það er okkur í Grensáskirkju gleðiefni að orgelið hafi nú fengið nýtt hlutverk í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Reykjavík 16. ágúst 2026. F.h. sóknarnefndar og safnaðarins, Erik Pálsson, formaður.
Hátt í þrjátíu manns úr Grensáskirkju gerðu sér ferð í Hvalfjörðinn af þessu tilefni, kirkjukór Grensáskirkju, Ásta Haraldsdóttir organisti, fulltrúar sóknarnefndar og safnaðarins. Gréta Zimsen lék á fiðlu ásamt Rósu Jóhannesdóttur og séra Þorvaldur Víðisson, sóknarprestur Grensáskirkju tók þátt í helgihaldinu, sem séra Þráinn Haraldsson og séra Ólöf Margrét Snorradóttir leiddu. Margrét Bóasdóttir fyrrum söngmálastjóri þjóðkirkjunnar stjórnaði sameiginlegum kór heimamanna og kirkjukórs Grensáskirkju við undirleik Ástu organista.
Að loknu helgihaldinu bauð sóknarnefndin og heimafólk upp á messukaffi í prestssetrinu í Saurbæ í blíðskapar veðri þar sem Hvalfjörðurinn skartaði sínu fegursta.
Myndir frá ferðinni og viðburðinum fylgja þessari samantekt. Myndirnar tók Rudiger Þór Seidenfaden.
Fleiri myndir frá viðburðinum
Fleiri myndir frá viðburðinum
Ásta organisti, Rósa og Gréta fiðluleikarar og nokkrir kirkjugestir.
Sameiginlegur kór
Sameiginlegur kór
Sameiginlegur kór heimamanna og kirkjukórs Grensáskirkju. Stjórnandi var Margrét Bóasdóttir fyrrum söngmálastjóri þjóðkirkjunnar. Organisti Ásta Haraldsdóttir.
Prestarnir þjónuðu saman
Prestarnir þjónuðu saman
Ólöf Margrét Snorradóttir prédikaði og þjónaði fyrir altari ásamt Þráni Haraldssyni og séra Þorvaldi Víðissyni. Þeir tveir síðar nefndu sjást hér ásamt kórfélögum.
Veðrið lék við okkur
Veðrið lék við okkur
Mikið lán var með veðrið þessa helgina, þar sem Hvalfjarðardagar fóru fram. Veðrið lék við okkur á messudegi og skartaði Saurbær og Hvalfjörður sínu fegursta.
Með kærum þökkum fyrir samveruna.