06
2026
July
Verið hjartanlega velkomin
Verið hjartanlega velkomin
Fermingarfræðsla vetrarins í Fossvogsprestakalli hefst með haustnámskeiði sem fram fer í Bústaðakirkju og Grensáskirkju dagana 19.-21. ágúst nk. kl. 9-12. Miðvikudaignn 19. ágúst mæta fermingarbörnin í sína kirkju, þ.e. þá kirkju sem þau munu sækja fermingarfræðslu í, Bústaðakirkju eða Grensáskirkju. Fimmtudaginn 20. ágúst verður hópurinn allur saman í Grensáskirkju og föstudaginn 21. ágúst söfnumst við öll saman í Bústaðakirkju.
Sunnudaginn 23. ágúst verða síðan upplýsingafundir fyrir fermingarbörn og foreldra að lokinni messu í báðum kirkjum, Grensáskirkju kl. 11 og Bústaðakirkju kl. 20.
Verið hjartanlega velkomin til þátttöku í fermingarfræðslu.