14
2025
August

Hefst á þriggja daga námskeiði, mánudaginn 18. ágúst
Hefst á þriggja daga námskeiði, mánudaginn 18. ágúst
Fermingarfræðslan í Fossvogsprestakalli hefst á þriggja daga fermingarnámskeiði sem fram fer bæði í Bústaðakirkju og Grensáskirkju. Fermingarnámskeiðið hefst mánudaginn 18. ágúst nk. kl. 9:00. Foreldrafundir verða síðan haldnir að loknu helgihaldi sunnudaginn 24. ágúst kl. 11 í Grensáskirkju og kl. 20 í Bústaðakirkju. Nánari upplýsingar má finna hér á heimasíðunni.
Skráning í fermingarfræðslu stendur yfir, en hún fer einnig fram hér á vefnum, sjá hér.
Verið hjartanlega velkomin í fermingarfræðslu í Fossvogsprestakalli, í Bústaðakirkju og Grensáskirkju.