Ferming í báðum kirkjum á Pálmasunnudegi
Fermingar standa yfir í Fossvogsprestakalli. Þær hófust í Bústaðakirkju sunnudaginn 22. mars, þar sem tvær fermingarathöfnir fóru fram þann dag kl. 10:30 og kl. 13:00. Á Pálmasunnudegi var fermt í báðum kirkjum prestakallsins, Grensáskirkju kl. 11 og Bústaðakirkju kl. 13. Myndin hér er tekin af Jónasi Þóri organista við lok fermingarmessu í Bústaðakirkju.
Allir þrír prestar prestakallsins þjónuðu í báðum athöfnum dagsins í báðum kirkjum, séra Laufey Brá Jónsdóttir, séra Sigríður Kristín Helgadóttir og séra Þorvaldur Víðisson. Kirkjukór Grensáskirkju söng í Grensáskirkju undir stjórn Ástu Haraldsdóttur og Kammerkór Bústaðakirkju söng í Bústaðakirkju undir stjórn Jónasar Þóris. Félagskonur í Kvenfélagi Bústaðasóknar sinntu þjónustu í Bústaðakirkju og héldu vel utan um fermingarhópinn, með prestunum.
Framundan eru páskar. Dagskrá helgihaldsins um páska má finna hér á heimasíðunni, sem og á samfélagsmiðlum og í Morgunblaðinu.
Verið hjartanlega velkomin til helgihalds í Bústaðakirkju og Grensáskirkju.