14
2024 maí

Fróðlegt erindi hjá Elínu Elísabetu

Fimmtudaginn 16. mars heimsótti Elín Elísabet Jóhannsdóttir fjölskyldu- og uppeldisfræðingur foreldramorgun í Bústaðakirkju. Hún ræddi um það að "finna ró í ólgusjó". Hún fræddi um kerfin þrjú: Sefkerfið, drifkerfið og streitukerfið. Athyglin beindist að hinum fullorðna og því hvernig við getum hlúð að okkur sjálfum í þeim krefjandi aðstæðum sem geta komið upp í foreldrahlutverkinu.

Foreldramorgnar fara fram hvern fimmtudag kl. 10 í Bústaðakirkju, gengið er inn af Bústaðavegi.Verið hjartanlega velkomin.

Staðsetning / Sókn