04
2026 September

Nýjungar í bland við rótgróna dagskrárliði

Kirkjustarfið í Bústaðakirkju og Grensáskirkju er að hefjast. 

Dagskráin í vetur er rík og fjölbreytt. Þar má finna nýjungar í bland við rótgróna dagskrárliði. 

Fyrirbænastundir, barnamessur, foreldramorgnar, eldriborgarastarfið, prjónasamverur, vinavoðir, karlakaffi, æskulýðsfélagið, Vinir í bata, kyrrðarbæn, Alfa námskeið, starf Kvenfélagsins, krílasálmar, kirkjuprakkarar, TTT, fermingarfræðsla, messuhópastarf, tónleikar og hið hefðbundna sunnudagshelgihald, og svo allt hitt, eins og sjá má á myndinni hér til hliðar. 

Verið hjartanlega velkomin til þátttöku í kirkjustarfinu. 

Hlökkum til að sjá ykkur.