Börnin í barnamessunni og ungmennin í æskulýðsmessunni í Bústaðakirkju
Æskulýðsdagurinn var fjölmennur í báðum kirkjum Fossvogsprestakalls sunnudaginn 1. mars sl.
Í Bústaðakirkju söng barnakór Fossvogs í barnamessunni kl. 11. Dásamlegur söngur hjá börnunum og utanumhald til fyrirmyndar. Séra Laufey Brá Jónsdóttir, Sólveig Reynisdóttir og Jónas Þórir leiddu stundina. Biblíusaga, barnasálmarnir og bænir. Börnin fengu músakex hjá mýslu. Boðið var til samveru í safnaðarheimilinu að athöfn lokinni, þar sem boðið var upp á ávexti og djús, kaffi og léttar veitingar, leikföng fyrir börnin og liti.
Klukkan 13 var síðan æskulýðsmessa þar sem Jónas Þórir leiddi tónlistina að vanda, með þátttöku tónlistarnema úr MÍT sem og Tónskóla Reykjavíkur. Fermingarbörnin tóku virkan þátt með lestri og bænum og söng. Séra Laufey Brá Jónsdóttir leiddi stundina. Gabríel og fleiri leiðtogar úr æskulýðsstarfinu leiddu söng.
Við þökkum góða þátttöku í helgihaldi Bústaðakirkju á æskulýðsdaginn. Fleiri myndir frá deginum má finna hér fyrir neðan.
Blár mars hófst í Grensáskirkju á Æskulýðsdaginn
Blár mars í Grensáskirkju hófst með dagskrá á æskulýðsdaginn, sunnudaginn 1. mars sl. Fermingarbörnin tóku virkan þátt í helgihaldi dagsins kl. 11 ásamt leiðtogum úr æskulýðsfélaginu. Gabríel lék á gítar undir söng fermingarbarna og æskulýðsfélagsins. Séra Sigríður Kristín Helgadóttir flutti hugvekju og leiddi stundina ásamt Sólveigu Franklínsdóttur æskulýðsfulltrúa. Ásta Haraldsdóttir stjórnaði tónlistinni, Stúlknakór Reykjavíkur söng. Að lokinni messu bauð æskulýðsfélagið Poný upp á vöfflukaffi. Að því loknu var boðið til tónleika, þar sem stúlknakór Reykjavíkur söng ásamt fleiri tónlistaratriðum.
Vöfflurnar voru seldar til styrkar Ljósinu og einnig var þátttakendum boðið að styðja Ljósið með fjárframlagi. Sokkar Krabbameinsfélagsins voru til sölu. Þátttaka í hvoru tveggja var framar vonum.
Dagskráin í Bláum mars heldur áfram. Nú á sunnudaginn er yfirskrift helgihaldsins Karlar og bænir. Á miðvikudagskvöldið 11. mars verður síðan boðið til dagskrár þar sem Matti Ósvald flytur erindi um karla og krabbamein. Robert Heimir fjallar um reynslu sína að greinast með krabbamein. Karlakór Kópavogs syngur. Sokkar Krabbameinsfélagsins verða til sölu og mögulegt verður að leggja fjárframlag til Ljóssins. Nánari upplýsingar um dagskrána framundan má finna á plakatinu hér fyrir neðan.
Einnig eru hér fyrir neðan fleiri myndir frá æskulýðsdeginum í Grensáskirkju.
Við þökkum öllum innilega fyrir þátttökuna og bjóðum ykkur hjartanlega velkomin til áframhaldandi þátttöku í Bláum mars í Grensáskirkju.
Dagskráin í Bláum mars í Grensáskirkju
Hér má sjá dagskrána í Bláum mars í Grensáskirkju.
Æskulýðsdagurinn í Bústaðakirkju, myndir
Barnamessa á æskulýðsdaginn í Bústaðakirkju, fleiri myndir.
Fleiri myndir úr Bústaðakirkju
Æskulýðsdagurinn í Bústaðakirkju, myndir
Æskulýðsdagurinn í Bústaðakirkju, fleiri myndir
Æskulýðsdagurinn í Bústaðakirkju, fleiri myndir.
Blár mars í Grenáskirkju á æskulýðsdaginn, myndir
Gréta Zimsen lék á orgel.
Ungur fiðluleikari í Grensáskirkju
Ungur fiðluleikari lék á tónleikum í Grensáskirkju á æskulýðsdaginn í Bláum mars, sunnudaginn 1. mars 2026.
Gabríel lék á gítar og unglingarnir sungu
Gabríel lék á gítar og börnin og unglingarnir sungu.
Sokkar Krabbameinsfélagsins til sölu
Sokkar Krabbameinsfélagsins voru til sölu.
Hvutti mætti líka í æskulýðsmessuna í Grensáskirkju
Hvutti mætti líka.