21
2025 August

Skálholtsútgáfan gefur út bók Þorvaldar Víðissonar

Kirkjuhúsið - Skálholtsútgáfan er til húsa á fyrstu hæð Bústaðakirkju og er gengið inn af Bústaðarvegi. Útgáfan gaf nýlega út bók séra Þorvaldar Víðissonar, sóknarprests Fossvogsprestakalls: Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi.

Eftirfarandi texti er á baksíðu bókarinnar: Þessi bók er safn af gömlum og nýjum tilvitnunum um kærleikann. Tilvitnanirnar eru margar fengnar úr okkar kristnu hefð, sálmum sálmabókarinnar og ritum Biblíunnar. Einnig eru hér fjölmargar tilvitnanir úr ritum annarra trúarbragða sem og bókmenntum og dægurlögum, innlendum og erlendum. Svo virðist sem ástin og kærleikurinn sé undirtónninn í tónverki lífsins, sá tónn sem skapar samhljóm milli allra hinna tónanna. Ástin spyr ekki um kyn eða kynferði, stétt eða stöðu. Ástin á ávallt rétt á sér og sigrar allt. Megi þessi samantekt verða til þess að glæða kærleikann í þínu lífi. 

Bókin á sér systurbók sem Skálholtsútgáfan gaf einnig út árið 2023, en sú bók fjallar um vonina og heitir: Vonin, akkeri fyrir sálina

Bækurnar er hægt að nálgast í Kirkjuhúsinu - Skálholtsútgáfunni á fyrstu hæð Bústaðakirkju, og í öðrum bókaverslunum. 

Verið hjartanlega velkomin í Bústaðakirkju.