06
2026 March

Margt framundan í Bláum mars, komdu og vertu með

Blár mars í Grensáskirkju hófst með dagskrá á æskulýðsdaginn, sunnudaginn 1. mars sl. Fermingarbörnin tóku virkan þátt í helgihaldi dagsins kl. 11 ásamt leiðtogum úr æskulýðsfélaginu. Gabríel lék á gítar undir söng fermingarbarna og æskulýðsfélagsins. Séra Sigríður Kristín Helgadóttir flutti hugvekju og leiddi stundina ásamt Sólveigu Franklínsdóttur æskulýðsfulltrúa. Ásta Haraldsdóttir stjórnaði tónlistinni, Stúlknakór Reykjavíkur söng. Að lokinni messu bauð æskulýðsfélagið Poný upp á vöfflukaffi. Að því loknu var boðið til tónleika, þar sem stúlknakór Reykjavíkur söng ásamt fleiri tónlistaratriðum. 

Vöfflurnar voru seldar til styrkar Ljósinu og einnig var þátttakendum boðið að styðja Ljósið með fjárframlagi. Sokkar Krabbameinsfélagsins voru til sölu. Þátttaka í hvoru tveggja var framar vonum. 

Dagskráin í Bláum mars heldur áfram. Nú á sunnudaginn er yfirskrift helgihaldsins Karlar og bænir. Á miðvikudagskvöldið 11. mars verður síðan boðið til dagskrár þar sem Matti Ósvald flytur erindi um karla og krabbamein. Robert Heimir fjallar um reynslu sína að greinast með krabbamein. Karlakór Kópavogs syngur. Sokkar Krabbameinsfélagsins verða til sölu og mögulegt verður að leggja fjárframlag til Ljóssins. Nánari upplýsingar um dagskrána framundan má finna á plakatinu hér fyrir neðan. 

Verið hjartanlega velkomin til áframhaldandi þátttöku í Bláum mars í Grensáskirkju. 

Dagskráin í Bláum mars í Grensáskirkju

Hér má sjá dagskrána í Bláum mars í Grensáskirkju.