26
2026
February
Karlar og krabbamein
Karlar og krabbamein
Blár mars er að hefjast í Grensáskirkju. Karlar og krabbamein verður sem sagt á dagskrá þar sem þátttakendur fá tækifæri til að styðja Ljósið og Krabbameinsfélagið.
Starfsfólk Grensáskirkju kallar til liðs við sig fjöldann allan af fólki sem mun með söng, fræðslu, vöfflusölu, skemmtidagskrá, tónleikum og ýmsu öðru leggja sitt að mörkum í Bláum mars í Grensáskirkju.
Dagskráin hefst á æskulýðsdaginn, sunnudaginn 1. mars næstkomandi, með æskulýðsmessu kl. 11:00 og tónleikum kl. 12:30. Alla sunnudagana í mars verður samskot tekið fyrir starfsemi Ljóssins og vörur frá Krabbameinsfélaginu verða til sölu.
Ýmsir munu taka þátt í helgihaldinu með okkur, til dæmis Skólahljómsveit Austurbæjar sem mun leika í fjölskylduguðsþjónustu sunnudaginn 15. mars og síðan Karlakór KFUM, sem mun syngja við messu sunnudaginn 22. mars.
Miðvikudaginn 11. mars klukkan 20:00 fer fram dagskrá með fræðslu og samtali um krabbamein karla. Karlakór Kópavogs mun syngja.
Þriðjudaginn 17. mars stendur æskulýðsfélagið Poný fyrir opinni skemmtidagskrá, þar sem foreldrar, ömmur og afar og fjölskyldur eru sérstaklega boðin velkomin.
Dagskrána í heild má sjá hér fyrir neðan.
Verið hjartanlega velkomin til þátttöku í Bláum mars í Grensáskirkju.
Blár mars í Grensáskirkju, dagskrá
Blár mars í Grensáskirkju, dagskrá