16
2024 maí

Aðalsafnaðarfundir Bústaðasóknar og Grensássóknar

Aðalsafnaðarfundir Bústaðasóknar og Grensássóknar fara fram sunnudaginn 23. apríl nk. að loknu helgihaldi.

Í Grensáskirkju fer aðalsafnaðarfundurinn fram í safnaðarheimilinu að lokinni messu kl. 12:05. 

Í Bústaðakirkju fer aðalsafnaðarfundurinn fram í safnaðarheimilinu að lokinni messu kl. 14:05. 

Dagskrá aðalsafnaðarfunda fer eftir 4. grein starfsreglna um söfnuði og sóknarnefndir nr. 16/2021-2022, sbr. starfsreglur nr. 16/2022-2023, þar sem segir m.a.: 

1. Gera grein fyrir starfsemi og rekstri sóknarinnar á liðnu starfsári.

2. Afgreiðslu reikninga sóknar og kirkjugarðs fyrir sl. ár, ásamt fjárhagsáætlun næsta árs.

3. Gera grein fyrir starfsemi héraðsnefndar og héraðsfundi.

4. Ákvörðun um meiriháttar framkvæmdir og framtíðarskuldbindingar.

5. Kosning tveggja skoðunarmanna eða endurskoðanda sóknar og kirkjugarðs og varamanna þeirra til árs í senn.

6. Kosning sóknarnefndar, sbr. 6. gr. starfsreglna þessara.

7. Kosning í aðrar nefndir, ráð og trúnaðarstörf.

8. Önnur mál.

 

F.h. sóknarnefndar Bústaðasóknar og sóknarnefndar Grensássóknar

Ásbjörn Björnsson, framkvæmdastjóri og séra Þorvaldur Víðisson, sóknarprestur.