07
2024 October

Karen Jóhannsdóttir leiddi stundina

Um 100 manns sóttu fyrstu barnamessu haustsins í Bústaðakirkju að þessu sinni. Karen Jóhannsdóttir leiddi stundina, ásamt séra Þorvaldi og Jónasi Þóri. Hér er Karen umvafinn smáfólkinu í barnamessu dagsins. 

Þórður Sigurðarson formaður sóknarnefndar afhenti 5 ára börnum bókina Litla Biblían. En sóknarnefndin bauð öllum fimm ára börnum, sem skráð eru í þjóðkirkjuna og búsett eru í hverfinu, sérstaklega til þátttöku í barnamessu dagsins, þar sem formaðurinn afhenti þeim bókina að gjöf.

Litla Biblían var gefin út af Skálholtsútgáfunni árið 2020 í þýðingu Karls Sigurbjörnssonar. Bókin inniheldur kjarnafrásögur Biblíunnar og er prýdd fallegum myndum. Einnig má í bókinni finna gagnlegar bænir fyrir börn á öllum aldri. Letur bókarinnar er líka aðgengilegt fyrir þau sem eru að læra stafina og eru að byrja að læra að lesa. 

Að lokinni fjörugri stund í kirkjunni var boðið upp á samveru í safnaðarheimilinu. 

Við þökkum öllum fyrir þátttökuna í dag. 

Verið hjartanlega velkomin í Bústaðakirkju. 

Þórður Sigurðarson formaður sóknarnefndar afhenti börnunum bókina

Þórður Sigurðarson formaður sóknarnefndar afhenti 5 ára börnum bókina Litla Biblían. En sóknarnefndin bauð öllum fimm ára börnum, sem skráð eru í þjóðkirkjuna og búsett eru í hverfinu, sérstaklega til þátttöku í barnamessu dagsins, þar sem formaðurinn afhenti þeim bókina að gjöf frá sóknarnefndinni.

Litla Biblían var gefin út af Skálholtsútgáfunni árið 2020 í þýðingu Karls Sigurbjörnssonar. Bókin inniheldur kjarnafrásögur Biblíunnar og er prýdd fallegum myndum. Einnig má í bókinni finna gagnlegar bænir fyrir börn á öllum aldri. Letur bókarinnar er líka aðgengilegt fyrir þau sem eru að læra stafina og eru að byrja að læra að lesa. 

Silvia Seidenfaden tók myndirnar. 

Litla Biblían er falleg bók

Litla Biblían er falleg bók, sem inniheldur kjarnafrásögur Biblíunnar og er prýdd fallegum myndum. 

Bókin fæst í Kirkjuhúsinu-Skálholtsútgáfunni á neðri hæð Bústaðakirkju. 

Verið hjartanlega velkomin í Bústaðakirkju.