Velkomin í barnamessu í Bústaðakirkju
Barnamessa fer fram í Bústaðakirkju sunnudaginn 1. mars nk. kl. 11:00.
Sólveig, séra Laufey og Jónas Þórir leiða stundina.
Á sunnudaginn er Æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar og af því tilefni fáum við góða gesti. Barnakór Tónskóla Reykjavíkur í Fossvogi mun taka lagið fyrir okkur undir stjórn Bjargar Ragnheiðar Pálsdóttur.
Samvera verður í safnaðarheimilinu að athöfn lokinni. Þar verða ávextir og djús, kaffi og léttar veitingar, auk leikfanga og lita.
Verið hjartanlega velkomin í barnamessu í Bústaðakirkju.
Umsjónaraðili/-aðilar