Tónlistarmessa sunnudaginn 25. október kl. 13.

Guðsþjónusta dagsins ber bleikan blæ í tilefni Bleiks októbers. Séra Laufey Brá Jónsdóttir þjónar fyrir altari ásamt kirkjuþjónum.

Tónlistin skipar sérstakan sess í messunni að þessu sinni. Kammerkór Bústaðakirkju syngur undir stjórn Jónasar Þóris og verður efnisskráin alfarið helguð lögum eftir hann. Þannig fá kirkjugestir einstakt tækifæri til að hlýða á lög Jónasar Þóris í flutningi kórsins sem hann sjálfur stjórnar.

Bleikur október stendur yfir í Bústaðakirkju og eru hádegistónleikar haldnir alla miðvikudaga í október kl. 12:05. Næsta miðvikudag munu Örn Árnason og Jónas Þórir gleðja tónleikagesti með vel völdum revíulögum og gamanmálum.

Aðgangur að hádegistónleikunum er ókeypis en tekið verður við frjálsum framlögum til styrktar Ljósinu, endurhæfingarmiðstöð fyrir fólk sem hefur greinst með krabbamein.

Yfirskrift Bleiks októbers í Bústaðakirkju að þessu sinni er „Lífið er fegurð og gleði“.

Verið hjartanlega velkomin í Bústaðakirkju á Bleikum október!

Bleikur október í Bústaðakirkju.

 

Jónas Þórir ( 1956 ) hefur verið kantor Bústaðakirkju í rúm 16 ár. Hann hefur verið ötull við að útsetja og semja sína eigin tónlist en ekki jafn ötull að koma henni á framfæri.

Jónas Þórir á t.d. 2 sálma í hinni íslensku sálmabók, sálm 319 b “ Þú sem líf af lífi gefur” ásamt sr. Hjálmari Jónssyni og sálminn 377 “ Þung er mín sorg og sár” ásamt Hjördísi Björgu Kristinsdóttur.

Eitt af elstu lögum Jónasar er Vögguvísa “ Þegar húma fer” við ljóð Magnúsar Péturssonar píanóleikara sem Helga Möller söng inn á plötu fyrir all mörgum árum.

Á sunnudaginn 25. október fáum við að heyra nokkuð af lögum og tónsmíðum Jónasar þar sem kórfélagar í Kammerkór Bústaðakirkju syngja ásamt því að syngja einsöng líka.

Á meðal einsöngvara verða:

Gréta Hergils Valdimarsdóttir, Svava Kristín Ingólfsdóttir, Eiríkur Hreinn Helgason og Jóhann Friðgeir Valdimarsson.

 

Bleikur október í Bústaðakirkju. Við styrkjum Ljósið og biðjum fyrir þeim sem hafa fengið krabbamein.