Svava Kristín og Steinunn Anna í kvöldmessunni

Í kvöldmessunni í Bústaðakirkju sunnudagskvöldið 9. júlí kl. 20 syngur Svava Kristín Ingólfsdóttir, mezzósópran, einsöng og leiðir almennan söng. Jónas Þórir leikur með á flygilinn. Prestur er sr. María Guðrúnar. Ágústsdóttir. Með henni þjónar messuhópur og Steinunn Anna Baldvinsdóttir guðfræðinemi sem flytur hugvekju. Verum velkomin á notalega og nærandi stund í kirkjunni okkar. 

Svava Kristín Ingólfsdóttir

Svava Kristín Ingólfsdóttir, mezzósópran, hefur lengi sungið með Kammerkór Bústaðakirkju. Hún hefur mikla reynslu af kórstjórn, bæði stjórn barnakóra og kvennakóra, og kemur oft fram sem einsöngvari.