Listahátíð barnanna í bleikum október í Bústaðakirkju

Sunnudagaskóli kl. 11 

Barnakór Fossvogs mun syngja undir stjórn Þórunnar Díu Steinþórsdóttur.  Kórbörn eru öll nemendur í forskóla Tónskóla Reykjavíkur. 

Marta Ragnhildardóttir leiðtogi leiðir stundina, biblíusagan er á sínum stað, barnasálmarnir og bænirnar. Að athöfn lokinni verður samvera í safnaðarheimilinu þar sem boðið verður upp á léttar veitingar. Leikföng, litir og gott samfélag.

Sannkölluð tónlistarveisla í boði yngsta fólksins. 

Verið hjartanlega velkomin. 

Sunnudaginn 18. október fer fram listahátíð barnanna en hátíðin er hluti af dagskrá Bleiks októbers í  Bústaðakirkju. 

Styðjum Ljósið og Krabbameinsfélagið í Bleikum október.