Bústaðakirkja - guðsþjónusta kl. 20

Bústaðakirkja – 3. sunnudagur eftir þrenningarhátíð

Guðsþjónusta sunnudaginn 21. júní kl. 20.  

Jónas Þórir kantor kirkjunnar gleður viðstadda með píanóleik og Marteinn Snævarr Sigurðsson tenór syngur.  

Sr. Sigríður Kristín þjónar fyrir altari.

Stundin er á léttum nótum, verið hjartanlega velkomin til helgihaldsins í Bústaðakirkju. 

Á sunnudaginn er 3. sunnudagur eftir þrenningarhátíð. 

Guðspjall dagsins segir af týndum syni: "En sonurinn sagði við hann: Faðir, ég hef syndgað móti himninum og gegn þér. Ég er ekki framar verður að heita sonur þinn. Þá sagði faðir hans við þjóna sína: Komið fljótt með hina bestu skikkju og færið hann í, dragið hring á hönd hans og skó á fætur honum. Sækið og alikálfinn og slátrið, við skulum eta og gera okkur glaðan dag. Því að þessi sonur minn var dauður og er lifnaður aftur. Hann var týndur og er fundinn. Tóku menn nú að gera sér glaðan dag."