Suður-amerísk sveifla í Bústaðakirkju kl. 13

Suður-amerísk sveifla verður í Bústaðakirkju kl. 13 sunnudaginn 22. október. Sr. María G. Ágústsdóttir þjónar ásamt messuhópi. Um sönginn annast einsöngvarar úr Kammerkór Bústaðakirkju, þau Gréta Hergils, Anna Sigríður Helgadóttir, Bjarni Atlason og Svava Kristín Ingólfsdóttir.

Og svo verða þeir félagar Sigurður Flosason á sax og Jónas Þórir á flygilinn og Hammondið. 

Verum öll innilega velkomin.