Guðsþjónusta kl. 20 á Sjómannadaginn

Sjómannadagurinn í Bústaðakirkju 

Aríel Pétursson, formaður Sjómanndagsráðs tekur til máls og syngur.  

Sindri Már Heimisson tekur sæti Jónasar Þóris organista Bústaðakirkju í hans fjarveru. Sindri Már þekkir hljóðfæri kirkjunnar afar vel, sér um að stilla þau og nú tekur hann að sér að leika á þau.  

Söngsveit Glitnis undir stjórn Jóns Kristins Cortes syngur fyrir viðstadda. 

Sr. Sigríður Kristín þjónar fyrir altari.  

Verið hjartanlega velkomin í Bústaðakirkju á Sjómannadaginn.  

 

 

Aríel Pétursson formaður Sjómannadagsráðs

Guðspjall Sjómannadags

Matt. 8.23-27

Nú fór Jesús í bátinn og lærisveinar hans fylgdu honum. Þá gerði svo mikið veður á vatninu að bylgjurnar gengu yfir bátinn. En Jesús svaf. Þeir fara til, vekja hann og segja: „Drottinn, bjarga okkur, við förumst.“ Hann sagði við þá: „Hví eruð þið hræddir, þið trúlitlir?“ Síðan reis hann upp, hastaði á vindinn og vatnið og varð stillilogn. Mennirnir undruðust og sögðu: „Hvílíkur maður er þetta? Jafnvel vindar og vatn hlýða honum.“