Páskahátíðin í Bústaðakirkju
Páskar í Bústaðakirkju
Hátíðarguðsþjónusta fer fram í Bústaðakirkju á páskadagsmorgun 5. apríl kl. 08:00. Hátíðartón séra Bjarna Þorsteinssonar verður sungið. Félagar úr Kammerkór Bústaðakirkju syngja undir stjórn Jónasar Þóris kantors kirkjunnar. Sr. Laufey Brá prédikar og sr. Sigríður Kristín Helgadóttir þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Morgunverður í umsjá Kvenfélags Bústaðakirkju verður í boði fyrir alla kirkjugesti að athöfn lokinni. Verið hjartanlega velkomin í Bústaðakirkju á páskum.
Páskadagsmorgun í Bústaðakirkju
Páskadagsmorgun í Bústaðakirkju
„Ég dó en nú lifi ég um aldir alda og ég hef lykla dauðans og heljar.“ (Opb 1.18b) Andstef: Drottinn er upprisinn, hann er sannarlega upprisinn.
Umsjónaraðili/-aðilar