Miðaldamessa í Bústaðakirkju, reykelsi og altarisganga

Sunnudaginn 13. október nk. kl. 13:00 fer fram miðaldamessa í Bústaðakirkju. Kammerkór Bústaðakirkju syngur undir stjórn Jónasar Þóris. Félagar úr Kammerkórnum syngja einsöng er það eru, Jóhann Friðgeir Valdimarsson, Svava Kristín Ingólfsdóttir og Edda Austmann Harðardóttir. Sönghópurinn Kyrja syngur. 

Séra Flóki Kristinsson og séra Þorvaldur Víðisson þjóna fyrir altari ásamt messuþjónum. Gengið verður til altaris. Reykelsi verður notað að fornum sið. 

Að lokinni messu flytur séra Flóki fræðsluerindi í safnaðarheimilinu um helgihald miðaldarkirkjunnar. 

Verið hjartanlega velkomin í miðaldamessu og fræðslu í Bleikum október í Bústaðakirkju. 

Miðaldamessa, reykelsi og altarisganga

Bleikur október í Bústaðakirkju

Bleikur október í Bústaðakirkju er dagskrá sem helguð er stuðningi við þau fjölmörgu sem glíma við krabbamein og aðstandendur þeirra. Dagskráin samanstendur af hádegistónleikum alla miðvikudaga kl. 12:05, fræðsluerindum á miðvikudögum og sunnudögum, sem og helgihaldi í anda yfirskriftarinnar: Miðaldir í helgihaldi og tónlist

Jónas Þórir organisti hefur veg og vanda að dagskránni ásamt prestum og starfsfólki Bústaðakirkju. 

Kammerkór Bústaðakirkju ber uppi tónlistina, þar sem sólistar úr kórnum láta ljós sitt skína. Einnig munu fleiri einsöngvarar og tónlistarfólk taka þátt, eins og Diddú, Kristján Jóhannsson, Hallveig Rúnarsdóttir, Hjörleifur Valsson, Bergþór Pálsson, Gissur Páll Gissurarson og sönghópurinn Kyrja, eins og sjá má á dagskránni sem fylgir þessari frétt. 

Fjölbreytt fræðsludagskrá verður jafnframt í boði í Bleikum október í Bústaðakirkju. Margrét Kjartansdóttir segir frá veru sinni á Indlandi. Séra Flóki Kristinsson flytur erindi um helgihald miðaldarkirkjunnar. Séra Skúli S. Ólafsson flytur erindi undir yfirskriftinni: Hvað fyllti skarð dýrðlinganna? Sálarheill og sálarró á 17. öld. Séra Irma Sjöfn Óskarsdóttir flytur erindi undir yfirskriftinni: Ljóðin um Hallgrím. Arnþór Óli Arason mun fjalla um pílagrímagöngu sína til Rómar. 

Prestar kirkjunnar leiða helgihaldið ásamt öðru starfsfólki og messuþjónum. Sigurbjörn Þorkelsson mun prédika 3. nóvember, en í helgihaldinu þann dag verða fluttir sálmar Sigurbjörns við lög Jóhanns Helgasonar. 

Aðgangur er ókeypis að öllum dagskrárliðum Bústaðakirkju í Bleikum október, en boðið verður upp á að leggja endurhæfingarmiðstöðinni Ljósinu lið, með fjárframlagi. 

Verið hjartanlega velkomin á Bleikan október í Bústaðakirkju.